Farin niður í bæ að reyna að sjá Boltastelpuna koma í mark í 7 km maraþoninu.
Við efnafræðistúdentinn erum annars að taka til, hann inni hjá sér og ég í búrinu. Ég er búin að finna einn jólabjór sem ekki er ljóst hvort er frá því í fyrra eða hitteðfyrra. Ég er viss um að hann er búinn að finna ýmislegt mun áhugaverðara.
Þeim sem ætla að koma í súpu eða kaffi í dag er bent á að Kárastígurinn er lokaður, sirka á móts við nr. 7. Þar sem gatan er einstefnuakstursgata þýðir þetta væntanlega að allir bílar í efri hlutanum séu innilokaðir til kvölds.