Ég fékk í hendur í gær fyrstu eintökin af bókunum sem ég var að vinna að í vor, Cool Cuisine og Cool Dishes. Þær eru alveg ljómandi snotrar þótt ég segi sjálf frá. Mér skilst að þær fari í dreifingu um eða eftir helgi.
Nú er ég í þeirri sérkennilegu aðstöðu að hafa skrifað fleiri matreiðslubækur á ensku en íslensku. Verð eiginlega að fara að gera eitthvað til að bæta úr því ...