Boltastelpan var hjá mér áðan og ég var að reyna að reka hana af stað þar sem hún átti að vera mætt til móður sinnar klukkan eitt.
Amman: - Svona, hættu nú að lesa Séð og heyrt og komdu þér af stað.
Boltastelpan: - Ég ætla að klára að lesa þessa blaðsíðu.
Amman: - Ókei. (Lítur við eftir smástund og sér að barnið er farið að lesa á öðrum stað í blaðinu.) - Þú sagðist bara ætla að klára blaðsíðuna!
Boltastelpan: - Það var allt önnur blaðsíða.