Lou Reed er maður sem var upp á sitt besta þegar ég var á sama aldri og barnabarnið mitt er núna. 'Nuff said, eða hvað? Nei, ekki alveg. Aldur og langlífi í bransanum þarf ekki að þýða að fólk sé alveg útbrunnið. Samanber Merlene Ottey. En mér sýnist á umsögnum að ég þurfi ekkert að gráta það að hafa ekki farið.
Ég sá ekki viðtalið við Reed en ef dæma má af þessu eru þeir sem eru settir í að taka viðtal við hann ekki öfundsverðir.