Kjúklingabitar á kúskúsbeði
4 kjúklingabringur, beinlausar og hamflettar
4 msk ólífuolía
safi úr 1/2 sítrónu
3 tsk kummin
1 1/2 tsk kóríanderfræ
1 tsk paprikuduft
1/2 tsk oregano
1/4 tsk kanell
nýmalaður pipar
salt
150 g sveppir
1 lítill laukur
vatn eftir þörfum
250 g kúskús
2-3 msk ólífuolía
1-1 1/2 sítróna
nýmalaður pipar
salt
hnefafylli af saxaðri steinselju
Kjúklingabringurnar skornar í 3-4 bita hver. Olíu, sítrónusafa og kryddi (nema saltinu) blandað saman í skál, bringubitunum velt upp úr blöndunni og látið liggja í nokkra klukkutíma. Hrært öðru hverju. Ofninn hitaður í 200°C og panna hituð. Kjúklingabitarnir saltaðir og brúnaðir á báðum hliðum við góðan hita - ekki setja of mikið á pönnuna í einu. Settir í eldfast fat og settir í ofninn í um 10 mínútur, eða þar til þeir eru rétt steiktir í gegn - best að skera í einn bitann til að athuga hvort hann sé til. Afganginum af kryddleginum (ef einhver er) hellt á pönnuna. Sveppirnir skornir í bita og laukurinn saxaður. Steikt í nokkrar mínútur en þá er um 200 ml af heitu vatni hellt á pönnuna, látið sjóða í smástund og botninn á pönnunni skafinn vel á meðan. Kúskúsið sett í skál, sveppunum og soðinu hellt saman við og meira heitu vatni hrært saman við þannig að kúskúsið verði eins og þunnur grautur. Diskur lagður yfir skálina og látið standa í um 5 mínútur. Þá er hrært upp í kúskúsinu með gaffli, ólífuolíu og sítrónusafa hrært saman við (og meira vatni ef þarf) og kryddað með pipar og salti eftir smekk. Steinseljunni hrært saman við. Sett á fat og kjúklingabitunum dreift yfir. Borið fram með ýmsu meðlæti í litlum skálum, t.d. gúrkuteningum, litlum tómatbátum, límónu- og sítrónubátum, salthnetum o.fl.
Það er líka tilvalið að blanda saman sömu kryddtegundum og eru í kjúklingamarineringunni og bera fram með í lítilli skál, þá geta þeir sem vilja hafa kúskúsið sitt meira kryddað stráð því yfir.