(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

1.6.04

Ég er búin að vera í múffukasti í dag. Bakaði níu mismunandi tegundir af múffum, sex sætar og þrjár ósætar - ætlaði eiginlega bara að baka fimm sortir en gat ekki hætt ...

Boltastelpan kom til mín eftir skóla, horfði yfir múffusortirnar níu og ákvað að af þeim væru tvær sem hún gæti borðað, bláberja og súkkulaði. Og gerði það hraustlega. Í miðri múffuorgíunni stoppaði hún allt í einu, horfði tortryggin á súkkulaðimúffuna og spurði:

- Eru hnetur?

- Já, sagði ég.

- Oj bara, sagði hún og ætlaði að hætta að borða.

- Heyrðu, sagði ég. - Ef þú ert að uppgötva það fyrst núna á þriðju súkkulaðimúffu að það eru hnetur í þeim, þá þýðir nú lítið að fara að segja oj.

Hún virti mig ekki svars. En hélt áfram að borða múffuna. Bætti svo einni enn á sig og minntist ekkert á hnetur.

|