Ég áttaði mig allt í einu á því að ég á auðvitað ekkert að vera að tjá mig um fjölmiðlafrumvarpið. Ég er náttúrlega gjörsamlega vanhæf til að hafa skoðun á því, verandi í saumaklúbb með konu forstjóra Norðurljósa, og svo versla ég stundum í Bónus.
Allt sem ég kann að hafa sagt um fjölmiðlafrumvarpið, Davíð Oddsson og ríkisstjórnina er þar með náttúrlega ómark.