Ég er heima að elda, ef einhver skyldi þurfa að ná í mig. Vaknaði klukkan sex í morgun til að baka tómatböku og grilla rækjur. Það var hvorttveggja fyrir Gestgjafann (þær hinar voru í Ísland í bítið í morgun) en hinir tólf réttirnir sem ég er að elda í dag eru það ekki.
Ég er semsagt frekar bissí í dag og má ekki vera að því að samfagna efnafræðistúdentinum, sem var í síðasta prófinu í morgun. Geri það ekki heldur í kvöld, þá er ég að fara í saumaklúbb.
Og í fyrramálið er ömmukaffi á leikskólanum hjá Sauðargærunni og þangað þarf ég að mæta. Reyndar uppástóð hann í morgun að hann væri sjálfur amma og neitaði að gegna öðru ávarpi.