Stundum þegar ég held að eitthvert heimilistæki eða raftæki sé bilað kemur í ljós að það er bara einhver takki sem er á Off þegar hann á að vera á On og ég hef ekkert fattað. Þá hlær efnafræðistúdentinn stórkarlalega og tautar jafnvel ,,dumme kvindfolk" að hætti móðurbróður síns og Andrésar andar.
Í þetta skipti snerist dæmið við. Internettengingin er nefnilega ekki í ólagi, eins og hann hélt þegar hann hringdi í mig í vinnuna í dag.