Við fórum á Hamborgarabúllu Tómasar áðan - segið svo að Gestgjafinn fylgist ekki með, það var opnað í gær - og fengum almennilega hamborgara, ekki eitthvert sveitt rusl. Sá gamli sjálfur einn við grillið. Allt á útopnu og logarnir stóðu upp í loftið. Namm. Ég get alveg mælt með þessari búllu, ef Tommi heldur dampinum.