Það er alltaf að verða betra að búa í miðbænum, nú voru Fylgifiskar að opna útibú á Skólavörðustígnum. Ekki ólíklegt að það verði oftar fiskur í matinn hér en áður þar sem búðin er í leiðinni heim.
Kvöldmaturinn var steinbítur marineraður í engifer, steiktur á pönnu með nýjum íslenskum tómötum skornum í helminga. Hrísgrjón og salat með paprikusósu með. Ekki slæmt.