(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

15.3.04

Mér skilst að Sauðargæran hafi fúlsað við kvöldmatnum heima hjá sér í gærkvöldi en þess í stað setið og tilkynnt ,,Ég er ekki spæta!" hvað eftir annað. Tilgangur yfirlýsingarinnar er óljós þar sem enginn kannaðist við að hafa borið upp á hann að hann væri spæta.

Ég er ekki spæta heldur en þegar ég vaknaði í morgun leið mér hálfpartinn eins og spæta hefði verið að hamast á hausnum á mér, ég var að farast úr hausverk. Og hafði ekkert til þess unnið, ég var líka slæm í hausnum í allan gærdag þótt ég fengi mér ekki einu sinni vínglas með matnum á laugardagskvöldið, hvað þá meira. Hins vegar skánaði verkurinn í morgun fljótt og ég ákvað á endanum að dröslast í vinnuna, það eru skil í prentsmiðju á miðvikudag og ég ekki búin að skila af mér öllu efninu sem ég á að sjá um. Og svo líður mér þokkalega núna.

Hefði samt verið alveg til með að vera letidýr í morgun. Eða bara köttur ...

|