Mér finnst ekkert gaman að blogggetraunum sem hægt er að finna svarið við á einni mínútu í leitarvél.
Svo er alveg búið að eyðileggja jólaskapið sem ég var komin í með eintómum aðhalds- og heilsuuppskriftum - við erum nefnilega að senda janúarblaðið í prentsmiðju og það er eintóm andskotans hollusta, eða svo gott sem. Allt gott um það að segja út af fyrir sig en þegar er bara vika til jóla og maður á eftir að baka helling, þá er ekkert gott að sökkva sér ofan í svoleiðis.
Annars er ég nokkuð viss um að þetta verða ekki sautján sorta jól.