Efnafræðistúdentinn er að fara í próf á morgun og móðir hans ætlast til þess að hann sitji með heima límdur við bækurnar; þykist þó viss um að hann sé eitthvað að laumast til að kíkja á netið öðru hverju. Til að gleðja drenginn og aðra fótbolta- og mulletáhugamenn set ég hér krækju á uglyfootballers.com sem hann getur skemmt sér við að skoða þegar efnafræðiformúlurnar verða of tyrfnar.