Ég er að horfa á endursýningu á Lífsháttum spendýra með öðru auganu og - hvernig sem á því stendur nú - þá er eiginlega sama hvaða dýr David Attenborough sýnir, ég fer alltaf að hugsa: Ætli þetta sé ætt? Ég er meira að segja búin að ná í nokkrar bækur sem eru líklegar til að geta upplýst mig um þetta - A Gourmet's Book of Beasts, The Curiosities of Food og fleiri áþekkar, og fletti dýrunum upp jafnóðum. Þetta er nú ekki alveg heilbrigt.