Samkvæmt nýrri skýrslu Hagstofunnar var Birta algengasta nafn sem gefið var stelpum fæddum á árunum 1996-2001. Hins vegar er varla nokkur einasta Birta fædd fyrir 1970. Þetta rifjaði upp fyrir mér að þegar ég lá á sæng á sjúkrahúsinu á Króknum fyrir nærri 30 árum var ég mikið að velta fyrir mér hvað ég ætti að láta dóttur mína heita. Afasystir mín lá líka á sjúkrahúsinu og við töluðum mikið saman, meðal annars um þetta. Hún stakk upp á að ég léti stelpuna heita Birtu; sagði að sér hefði ævinlega þótt það svo fallegt nafn og sagðist hafa verið harðákveðin í því að láta dóttur sína heita það. En svo eignaðist hún auðvitað bara stráka.
Ég tók eitthvað dauflega undir þetta, var ekkert hrifin af Birtu-nafninu. Og vandinn með nafngjöfina leystist svo á óvæntan hátt. En ef ég hefði farið að tillögu þessarar frænku minnar, þá væri gagnlega barnið ein sú elsta af mörg hundruð Birtum. Hún kvartaði stundum yfir því á yngri árum að ég hefði látið sig heita algengasta kvenmannsnafni í heimi. Ég er ekkert alveg viss um að hún hefði orðið sáttari við Birtu-nafnið.