Allt í einu eru allir farnir að tala um jólin - jólabækur, jólaundirbúning, jólahreingerningar, jólasveina ... ég held að ég sé að smitast af þessu. Reyndar er ég búin að vera á kafi í jólabakstri og jólamatargerð vikum saman en það hefur ekki haft nokkur áhrif. En allt í einu er ég farin að velta því fyrir mér hvað ég eigi að hafa í jólamatinn.
Ég var farin að hafa áhyggjur af þessu og þegar við efnafræðistúdentinn gengum framhjá Tiger áðan og ég sá að það var komið fullt af jólaskrani í búðina, þá dró ég hann með inn og labbaði einn hring til að tékka á hvort ég væri komin í jólaskap. Svo var ekki. Ég kom út án þess að hafa fallið fyrir einu einasta jólaglingri.
Það var nú gott. Ég vil ekki sjá að komast í jólaskap fyrr en í fyrsta lagi mánuði fyrir jól. Helst ekki fyrr en á jólaföstu.