Oh, fjandinn. Ég var að vinna með rósablöð í eldhúsinu áðan og kom með nefið of nálægt þeim. Ég er nefnilega með vægt blómaofnæmi; þoli alveg að vera í sama herbergi og blóm (semsagt engin ástæða fyrir aðdáendur mína til að hætta að færa mér blómvendi þegar þeim dettur í hug) en má ekki lykta af þeim eða koma mjög nálægt þeim. Og nú er ég komin með nefrennsli og pirring ...