Ég rétt gat stoppað einn vinnufélaga minn áðan þegar hann var í þann veginn að dýfa konfektmola ofan í kalkúnasósu - hann hélt að þetta væri súkkulaðisósa, enda var kalkúnninn ekki kominn á borðið, var á leiðinni innan úr eldhúsi. Ég hálfsé eftir að hafa varað hann við, það hefði verið gaman að sjá viðbrögðin. En samt - ég hefði ekki getað horft upp á þetta.