Mér sýnist að það hafi verið stuð á Októberfest hjá efnafræðistúdentinum og félögum, mikið öl drukkið, dansað og etið. Allavega var víst ekki mikið eftir af svínslærinu sem ég steikti handa þeim.
Hljómsveitin tók létta æfingu í stofunni hér á Kárastígnum áður en haldið var til veislunnar. Nágrannarnir kvörtuðu ekkert, þótt hraustlega væri blásið. Forsöngvarinn naut sín samt ekki sem skyldi á heimavígstöðvum, þar sem enginn var til að taka undir með honum.