Fólk er eitthvað að dunda sér við að gera ,,100 atriði um mig"-lista eða eitthvað ámóta. Ég hef ekki hugmyndaflug í svoleiðis, ég ætla bara að gera ,,1 atriði um mig"-lista í staðinn. Hann er svona.
1. Súkkulaði. Dökkt, því dekkra þeim mun betra. Eða hvítt. Eða mjólkursúkkulaði. Eða bara súkkulaði.
Þá vitið þið allt um mig.