Fyrst ég er komin í ávaxtakökubakstur í vinnunni, þá er víst réttast að ég fari að efna í mína eigin jólaköku. Köku til að bera fram á Þorláksmessu 2004, nánar til tekið. Kakan fyrir jólin í ár er þegar til, hún var bökuð í október í fyrra.
Og nei, þetta er ekki ensk jólakaka. Þær eru yfirleitt alltaf kryddaðar. Þessi er ekki krydduð.