Þegar hálskirtlarnir voru teknir úr mér fyrir ótal árum þýddi það ferðalag landshluta á milli, fjögurra daga sjúkrahúslegu og vesen og ég var ekki upp á marga fiska fyrstu dagana á eftir og mátti ekkert fá fyrsta sólarhringinn nema frostpinna ef ég man rétt.
Sauðargæran kom hér áðan eftir að hafa verið í kirtlatöku í morgun, arfahress til þess að gera, notfærði sér óspart að allir vorkenndu honum, fékk að mala hnetur í kaffikvörninni og sulla í eldhúsvaskinum á meðan aðrir borðuðu lasagne og hámaði svo í sig nokkrar súkkulaðibitakökur ofan á brauðsneiðarnar fjórar sem hann borðaði á sjúkrahúsinu.
Kannski er bara fullkomlega eðlilegt að systir hans skuli hafa öfundað hann.