Barnabörnin eru hjá mér núna og voru í mat. Þar sem efnafræðistúdentinn er ekki heima var ákveðið að hafa svið, sem eru á meðal uppáhaldsrétta Boltastelpunnar, og athuga hvernig Sauðargærunni litist á. Hann hefur ekki smakkað svið áður. Og hefur reyndar ekki gert það enn, því að eftir að hafa horft smástund á bitana á diskinum sínum tilkynnti hann: ,,Ljótt kjöt," og fékk sér kartöflustöppu.