Saumaklúbbaréttirnir, framhald.
Eftirréttur úr Tex-Mex-pakkavörum? Hljómar kannski sérkennilega en þegar ég fæ svoleiðis verkefni reyni ég að gera það sem ég get úr því og hér er árangurinn. Kom mér reyndar býsna mikið á óvart, þetta var fantagott. Ég mæli sérstaklega með Old El Paso-tortillum í þetta, þær eru betri en aðrar hveititortillur sem ég hef prófað og hentuðu mjög vel hér.
Ávaxtatortillur með karamellusósu
1 hálfdós niðursoðnar ferskjur
1 stórt epli (Jonagold) eða 2 minni
1 1/2 dl púðursykur
1 dl sykur
75 g smjör
1 tsk kanill
6-8 Old El Paso tortillur
Safanum af ferskjunum hellt í pott. Eplið afhýtt, kjarnhreinsað og skorið í litla bita. Sett út í og soðið í safanum í 3-4 mínútur en síðan tekið af hitanum og látið kólna. Ofninn hitaður í 200°C. Safanum er svo hellt aftur í pottinn, púðursykri, sykri, smjöri og kanel hrært saman við, hitað að suðu og látið malla í 3-4 mínútur. Á meðan eru ferskjurnar skornar í litla bita og blandað saman við eplin. Dálítið af blöndunni sett á miðjuna á einni tortillakökunni og henni síðan rúllað upp, gjarna eins og vorrúllu (brotið upp á endana áður en tortillan er vafin um fyllinguna). Raðað hlið við hlið í eldfast form, sem best er að sé rétt mátulega stórt til að rúma allar vefjurnar. Karamellusósunni hellt jafnt yfir, sett í ofninn og bakað í 15-20 mínútur. Borið fram með sýrðum rjóma (36%) - nú, eða þeyttum rjóma eða ís.