Mogginn segir frá konu sem var sýknuð af kæru um að hafa ráðist á aðra konu á bílastæði á Akureyri: ,,með þeim afleiðingum að hún handleggsbrotnaði á fjærenda hægri framhandleggs".
Ég sit hérna og er að horfa á hægri framhandlegginn á mér. Mér finnst ekki vera neinir endar á honum, þannig séð. Hvorki nær né fjær.
En kannski þetta hafi verið utanbæjarkona.