Sauðargæran er búinn að læra á expressóvél foreldra sinna og farinn að fá sér kaffi sjálfur. Það finnst mér nokkuð hraustlegt, miðað við að hann verður ekki tveggja ára fyrr en í sumar. En kannski ekki skrítið, miðað við vinnustað föðurins.
Systir hans gat bakað pönnukökur nærri hjálparlaust þegar hún var sex ára. Mér sýnist allt stefna í að ég hafi bráðum tvo duglega hjálparkokka.