Ég var að fá nýtt grill í dag, nýsjálenskt tryllitæki - ryðfrítt stál og fínheit, algjört karlmannagrill sem sagt, með verðmiða í samræmi við það, en ég er nú ekki að borga fyrir það sjálf. Mér líst ansi hreint vel á gripinn og byrjaði á því að grilla kalkúna - 4 1/2 kílós stykki, tók klukkutíma og korter að grilla hann. Nú er rósmarínkryddað lambalæri komið á grillið og sýnist ætla að grilla sig sjálft (ég er að undirbúa veislu á morgun). Svo má búast við miklum grilltilraunum næstu vikurnar ...