Mig dreymir örugglega kjötbollur í alla nótt, ég er búin að steikja sex hundruð kjötbollur í dag.
Sauðargæran er búin að uppgötva að amma hans á stóran og fínan pottaskáp með mjöööööög mörgum pottum. Þeim var flestum dröslað inn í stofu áðan, þar sem pottar eru eitt helsta eftirlætisleikfang drengsins. Hann verður sennilega kokkur.