Ég er búin að vera svo fúllynd og neikvæð í dag (samanber færsluna hér á undan) að þetta getur ekki endað nema á tvo vegu.
Annaðhvort fer ég heim og hakka vesalings efnafræðistúdentinn í mig fyrir einhverjar enn óuppgötvaðar syndir eða ég fer á Vínbarinn.
En ef ég fer heim neyðist ég til að hefja framkvæmdir við að affrysta frystiskápinn, sem er stórverkefni. Ég nenni því ekki akkúrat núna.
Þannig að þetta er ekki mjög vandasamt val.