Ætli við þurfum ekki að byrja að mynda fyrir grillblað Gestgjafans á mánudaginn. (Nanna snýr sér við í stólnum og horfir út yfir kolgráan Faxaflóann og Sorpufánann sem slæst til í rokinu.) Hmmm. Sennilega best að byrja á grillsósunum og vonast svo eftir að skáni þegar nær dregur pálmasunnudegi. Fyrst tillaga mín um að leigja sumarhús Blaðamannafélagsins á Spáni og mynda þar hlaut ekki hljómgrunn.