Ég horfði semsagt bara á fyrstu mínúturnar af Titanic í gær en hjó þó eftir einum þýðingarmistökum: Hope-demanturinn frægi var kallaður Vonardemanturinn, en hann er reyndar kenndur við Hope-fjölskylduna, sem átti hann lengi.
Ekki veit ég hvort þetta ætti heima á Tóbakstuggu-vefnum en ég gæti nú örugglega rifjað upp ýmislegt sem ætti heima þar. Þótt fátt slái út manninn sem málaði bílinn sinn með hárbursta (airbrush).