Nú er Stjáni blái illa settur
Ég var að hugsa um að gera spínatrétt í dag. Í hann þurfti 500 grömm af spínati. En þegar ég kom út í búð og sá 100 gramma poka af spínati á um 450 krónur, þá hætti ég við. 4500 krónur kílóið - það er eins og fínasta nautakjöt eða villibráð og þetta hálfa kíló hefði kostað mig á þriðja þúsund krónur, fyrir utan annað sem þarf í réttinn. (Jú, ég hefði getað fengið spínatið eitthvað ódýrara og eins hefði ég getað notað frosið spínat, sem er töluvert ódýrara - en mér varð bara svo mikið um þetta að ég hætti við.)
Ég hef hingað til yfirleitt keypt spínat í 300 gramma pokum og þeir hafa iðulega verið á 5-600 krónur að undanförnu. Það er þó vel innan við tvöþúsundkall á kíló, sem er nú alveg drjúgur skildingur. Nú sá ég það í 100 og 200 gramma pokum (200 grömmin kostuðu um 650 krónur). Ætli það sé verið að bjóða upp á þessar minni umbúðir til að fólk átti sig síður á þessari svaðalegu hækkun?
Og er ekki vel hægt að rækta spínat hér á landi? Vill ekki einhver góður garðyrkjubóndi taka sig til í sumar, rækta spínat og selja það á skaplegu verði?