Alvöru skyndibiti
Fiskur er hinn eini sanni skyndibiti.
Þessi réttur tók mig nákvæmlega tólf mínútur frá upphafi til enda (fyrir utan reyndar tímann sem fór í að hita ofninn).
Þorskur með reyktu paprikudufti (ansi hreint góðu), rioja-skinku (átti þessar sneiðar og þurfti að nota þær í eitthvað) og smjörbaunum úr dós, krydduðum með timjani og pipar.
Ekki slæmt.