Ugla sat á kvisti (nei, ekki um prófkjör)
Það voru kannski allir búnir að sjá þetta á undan mér en það var að renna upp fyrir mér hvað opnuauglýsingin frá Ellingsen í Fréttablaðinu í morgun er grátlega fyndin.
Það er að segja, þegar maður skoðar litlu myndirnar neðarlega á síðunni og áttar sig á því hvaða orð vantar aftan á þuluna.