Kalt er úti og kuldahrím, komið undir vetur
Held kannski að ég sé að verða eitthvað lasin. Sem er hábölvað því ég ætla að nota alla helgina í að vinna. Nema náttúrlega þegar ég skrepp og mótmæli. Ekki veitir manni af smáaukatekjum þessa dagana.
Þó að Geir ætli ekki að hækka skattana mína.
Það er harður vetur í aðsigi. Þótt ég horfi ekki nema fram að jólum eins og ég hef þegar sagt.