(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

12.8.08

Hundrað ára - til samans

Fyrst sá 12. er runninn upp, þá ætla ég að óska tveimur vinkonum mínum sem báðar eru fimmtugar í dag innilega til hamingju. Þær Rósa og Gurrí eru fæddar að ég held með örfárra mínútna millibili en að vísu hvor á sínu landshorni. Ég er búin að þekkja Rósu frá 1973, Gurrí frá 1974 ... eða samtals í 69 ár. 69 ár af vináttu, það er nú ekki slæmt.

Ég er boðin í afmæli til beggja, annað er á morgun (eða sko í dag), hitt á laugardaginn. Þann dag á Madonna reyndar líka fimmtugsafmæli en hún bauð mér ekki. Enda fórum við aldrei saman á ball í Bifröst eða Miðgarði eða Höfðaborg.

Til hamingju með daginn, stelpur.

|