Græn í gleðigöngu
Fór í gleðigönguna, auðvitað. Þangað mætir stór hluti fjölskyldunnar og gengur með henni systurdóttur minni. Við Sauðargæran vorum að vísu ekki í regnbogalitunum, heldur væn og græn (ég að vísu mun grænni, hvað sem öðru líður).
Ég hef ekki áður gengið alla leið, hef horft á mestalla gönguna fara framhjá og smeygt mér svo inn í hana - maður sér óneitanlega meira en það er mikil stemmning líka að ganga með.