Story of my life
Ég missti fjarstýringuna af sjónvarpsafruglaranum í gólfið áðan og annað batteríið hrökk eitthvað út í veður og vind - sennilega undir sófa - og þar sem ég nenni ekki að leita það uppi og er ekki viss um að ég eigi annað batterí verð ég líklega að horfa á norska sjónvarpið (NR1, plúsrásina) það sem eftir lifir kvölds, ef ég ætla að horfa á sjónvarp á annað borð.
Trúlega er hægt að skipta um rás handvirkt á afruglaranum sjálfum en ég hef aldrei fundið út úr því og nenni ekki að byrja á því núna. Reyndar er Kavannagh lögmaður að byrja, það er nú alveg hægt að horfa á hann í neyð.
Story of my life, sko. Föst á norska ríkissjónvarpinu vegna eigin klaufsku og leti.