Geiri og boltabullur Forlagsins
Það er nóg að gera í félagslífinu þessa dagana. Í hádeginu á morgun ætlar framkvæmdastjóri forlagsins að reyna að gera okkur að handboltabullum með pítsum og gosi og málningu í fánalitunum og hvaðeina.
Og í kvöld er maður bara boðin á opnunina á nýja Sport- og entertainmet-barnum hans Geira. Ég hef nú áður verið í partíi með honum Geira; það var stuð.