Tilviljanakennd fótbrot
Hér sit ég og fletti í gegnum lokapróförk að bók sem er að fara í prentsmiðju. Aftan við miðja bók kemur þar sögu að aðalsöguhetjan fótbrotnar, eða er fótbrotinn af vondum bófum. Og akkúrat þegar ég er að bera saman leiðréttingar á þeirri síðu kemur samstarfskona mín og færir mér þau tíðindi að umbrotsmaðurinn sem á að fá handritið til lokaleiðréttinga hafi fótbrotnað um helgina.
Tilviljun? Tja ...
... já.