(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

22.8.08

Blá, hvít og rauð - og enn í sexinu

Ég ætlaði að mála mig í fánalitunum, svona til að vera með í tilefni dagsins, en það strandaði á því að ég átti engan bláan augnskugga. Síðasti slíkur sem ég átti týndist á einhverju djammi sumarið 1973 ef ég man rétt. Á eftir honum átti ég brúnan augnskugga sem ég kunni ekki að nota og leit alltaf út eins og ég væri með glóðarauga á báðum þegar ég klíndi honum á mig.

En ég mætti í bláu pilsi, næstumþvíhvítum bol og rauðri peysu í vinnuna svo að ég hlýt að eiga rétt á pítsusneið í pítsupartíi framkvæmdastjórans í hádeginu. Reyndar ætla ég ekki að horfa á leikinn, það er nóg annað að gera (var varla fyrr búin að skila af mér símavændisbókinni en ég fékk súpersexbók að fást við, það er ekki skrítið að mér hafi verið boðið í partíið hjá Geira í gær - sem ég nennti svo ekki í).

Ég tek mig allavega þjóðlega út í dressinu.

|