Okkar gúrúa á milli
Ég fékk póst frá Sai Baba Marriage Links þar sem mér er boðið að gefa álit á væntanlegum maka. Fékk mynd með og alles.
Ég veit ekki hvernig stendur á því að blessaður karlinn hann Sai Baba vill endilega útvega mér maka. Einn gúrú að liðsinna öðrum, líklega. Fallega hugsað af honum, þannig séð.
Og ef ég væri í leit að maka mundi ég kannski hafa samband við Sai og hjúskaparkrækjurnar hans. Nema ég mundi þá helst vilja huggulegan mann á heppilegum aldri en ekki þessa ungu og laglegu indversku stúlku sem hann er að bjóða mér.