(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

5.3.08

Manneskjan sem mig langar til að vera

Stjörnuspáin mín - ef ég ákveð að vera fiskur í dag - segir að ég sé að verða sú manneskja sem mig hefur alltaf langað til að vera.

Ég gleymdi að líta í spegil í morgun. Er ég virkilega að verða hávaxin, grönn, glæsileg rauðhærð skutla með heillandi bros og hressa framkomu? Ætli ég sé loksins komin með söngröddina sem mig hefur alltaf langað til að hafa og jafnvel peningavit líka? Þetta er manneskjan sem mig hefur alltaf langað til að vera.

Best að lesa hitt stjörnumerkið mitt til öryggis. ,,Dugnaður laðar að sér meiri vinnu." Jamm. Kannski ég sé hrútur í dag.

|