Vitlausa konan
Sauðargæran hringdi í mig í morgun. Hann er að læra að nota síma og hringir töluvert þessa dagana.
-Heyrðu amma, ég hringdi í þig áðan og það svaraði vitlaus kona í símann þinn!
Stundum vildi ég að ég væri sex ára og sannfærð um eigin óskeikulleika.