Börn og blæti
Það var verið að ræða blæti við kvöldverðarborðið í gær.
Eitthvað af því tali hefur síast inn í kollinn á Sauðargærunni (sem annars var mjög upptekinn af matnum sínum og tilkynnti meðal annars upp úr eins manns hljóði: ,,Ég ætla að giftast þessu kjöti!") því að skyndilega ákvað hann að leggja eitthvað til málanna:
-Ég er með West Ham-blæti.
Það varð ekki meira úr þeirri umræðu.