Næstbestur í heimi
Samkvæmt fregnum frá Antwerpen er uppáhaldstengdasonur minn (efsta mynd fyrir miðju) næstbesti kaffismakkari í heimi - hann varð í öðru sæti á heimsmeistaramótinu núna rétt áðan.
Segið svo að ég kunni ekki að velja mér tengdabörn.
Eða kaffi (nei, ég læt hann reyndar gjarna um það).