Ekki allt í lagi
Aumleg drengsrödd barst frá baðherberginu áðan:
-Amma, þetta er ekki allt í lagi.
Amman: -Hvað er ekki í lagi, Úlfur minn?
Aumlega drengsröddin: -Ég missti klósettrúlluna ... ofan í sko klósettið.
Og þegar amman kom inn stóð þarna drengur sem var reyndar fremur aulalegur en aumlegur á svipinn og hélt á haugblautri klósettrúllu í höndunum.
Við urðum sammála um að þetta væri ekki allt í lagi.