Ammæli
Ég dró börnin mín með á Vínbarinn. Ekki fallegt afspurnar ...
En þar sem annað er 26 ára og hitt verður 33 á sunnudaginn var þetta nú líklega í lagi.
Afmælisveislan verður hins vegar ekki fyrr en á föstudaginn. Hún er í Sjóminjasafni Reykjavíkur á Grandagarði, kl. 18-20, og þið bloggkunningjar mínir (nei, ekkert bloggvinakjaftæði hér, þetta er ekki Moggabloggið) eruð auðvitað hjartanlega velkomnir. Rétt eins og á Þorláksmessu - veitingarnar verða líklega svipaðar nema meira úrval af drykkjarföngum.
Þetta með Sjóminjasafnið hefur enga sérstaka dýpri merkingu.