Íslenska geitin
Ég smakkaði einmitt geitaostinn úr mjólkinni hennar Jóhönnu á Háafelli á Slow Food-fundinum á laugardaginn. Hann var bara skrambi góður; mildur og mjúkur en með greinilegu geitabragði. Mæli með honum.
Jóhanna er að vinna mjög merkilegt frumkvöðulsstarf og vonandi að henni takist að hrinda áformum sínum varðandi geitabúskapinn í framkvæmd. Nú hefur íslenska geitin verið tekin inn í Ark of Taste hjá SlowFood og það er merkur áfangi út af fyrir sig. Geitastofninn hefur nefnilega verið hér í yfir 1100 ár - líklega alveg án íblöndunar, að minnsta kosti um margra alda skeið. árið 1703 munu hafa verið rúmlega 800 geitur á landinu öllu. Tvisvar hefur stofninn farið niður fyrir 100 geitur, sem er auðvitað hættulega nálægt því að deyja út, og ég held að núna séu ekki nema um 400 geitur á landinu, þar af er fjórðungurinn á Háafelli.